Vetrarleikar - YOWG
Á Ólympíuleikum ungmenna (The Youth Olympic Games, YOG) er keppt í íþróttagreinum þeirra alþjóðasérsambanda sem eru með keppnisgreinar á Ólympíuleikum.
Aldur keppenda er 15-18 ára.
Fyrstu vetrarleikarnir fóru fram í Innsbruck í Austurríki árið 2012. Vetrarleikarnir standa yfir að hámarki í 9 daga. Hámarksfjöldi þátttakenda á leikunum eru 970 íþróttamenn og 580 dómarar.
Markmið leikanna er að sameina besta unga íþróttafólk heims í keppni og leik við bestu hugsanlegu aðstæður. Boðið er uppá öfluga kynningu á Ólympíuhugsjóninni og áhersla lögð á að þróa menntun og mat á ólympískum gildum auk þess að ræða um þær ógnanir sem steðja að samfélaginu í dag. Þá er markmiðið að kynna enn frekar íþróttir ungmenna og efla þátttöku í íþróttastarfi á heimsvísu.
Facebook-síða YOG

2016 - Lillehammer
2020 - Lausanne