2014 Sochi
Vetrarólympíuleikarnir fóru fram í Sochi í Rússlandi
7. - 23. febrúar 2014.
Hér má sjá íslenska þátttakendur á Vetrarólympíuleikunum í Sochi
Upplýsingar á heimasíðu Alþjóða Ólympíunefndarinnar um leikana

![]() | ![]() |
Fréttir
Afhending á viðurkenningum til Ólympíufara
ÍSÍ bauð í gær, fimmtudaginn 5. júlí, til móttöku í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Fánaberi á lokahátíð Vetrarólympíuleikanna í Sochi
Nú líður að lokahátíð Vetrarólympíuleikanna í Sochi en hún hefst kl. 16:00 í dag, að íslenskum tíma.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur valið Helgu Maríu Vilhjálmsdóttur til að vera fánaberi íslenska Ólympíuhópsins á lokahátíðinni en Helga María, sem er aðeins 18 ára, stóð sig afar vel á leikunum.
Keppni lokið í stórsvigi
Einar Kristinn Kristgeirsson og Brynjar Jökull Guðmundsson hafa nú lokið keppni í stórsvigi karla í Sochi. Þeir voru í 63. og 65. sæti eftir fyrri ferðina, af þeim 79 keppendum sem komust niður. Einar Kristinn fór brautina á samtals 3:06,55 mínútum og hafnaði í 56. sæti. Hann var 20,16 sekúndum á eftir Ólympíumeistaranum Ted Ligety. Sævar keppti í sprettgöngu
Sochi 2014 – Breyting á íslenska hópnum
María Guðmundsdóttir keppandi í alpagreinum skíðaíþrótta slasaðist á móti í Þýskalandi í gær. Ljóst er að hún mun ekki geta keppt á Vetrarólympíuleikunum í Sochi sem hefjast þann 7. febrúar nk. og hefur Skíðasamband Íslands (SKÍ) óskað formlega eftir því við ÍSÍ að varamaður keppi í hennar stað. Sochi 2014 - Móttökuhátíð í Ólympíuþorpi
Tímasetningu á móttökuhátíð íslenska hópsins hefur verið breytt.Vetrarólympíuleikar – Sochi 2014
Nú styttist í að XXII Vetrarólympíuleikarnir verða settir í Sochi í Rússlandi, en þeir verða settir þann 7. febrúar nk. Andri Stefánsson, aðalfararstjóri íslenska hópsins, er kominn til Sochi og byrjaður að undirbúa vistarverur íslenska hópsins. Ólympíuhópurinn í Sochi
100 dagar í Vetrarólympíuleika
Í dag 30. október 2013 eru 100 dagar í að Vetrarólympíuleikarnir í Sochi verða settir.
Það má því með réttu segja að lokaundirbúningur sé hafinn, en þessa dagana eru íþróttamenn að vinna að því að ná tilsettum árangri til að tryggja sér keppnisrétt á leikunum.
Vetrarólympíuleikar - Sochi 2014
Ólympíuhópur – Sochi 2014
Eftir fimm mánuði fara Vetrarólympíuleikar fram í rússnesku borginni Sochi við Svartahaf.
Skíðasamband Íslands (SKÍ) hefur tilnefnt Ólympíuhóp sambandsins, en hann skipa þeir íþróttamenn sem eiga raunhæfa möguleika á að tryggja sér keppnisrétt á leikunum og taka þátt í landsliðsverkefnum SKÍ á komandi vetri. Ólympíusamhjálpin styrkir undirbúning fyrir Sochi 2014
Á síðasta ári sótti ÍSÍ um styrki til Ólympíusamhjálparinnar vegna undirbúnings fyrir Vetrarólympíuleikana í Sochi 2014. Ólympíusamhjálpin veitir Ólympíunefndum styrki vegna íþróttamanna og fékk Ísland styrki fyrir fimm íþróttamenn sem allir koma frá Skíðasambandi Íslands. Nema styrkirnir 1.200 bandaríkjadölum (USD) á mánuði og er um allt að 14 mánuði að ræða, frá 1. janúar 2013 til 28. febrúar 2014. Auk þessa er veittur ferðastyrkur að hámarki 5.000 USD vegna hvers þeirra.
