Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

27.03.2025 - 27.03.2025

Ársþing HSK 2025

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
27.03.2025 - 27.03.2025

Ársþing ÍS 2025

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
28

Göngum í skólann

Vefsíða Göngum í skólann er gongumiskolann.is

Á vefsíðu Göngum í skólann er að finna helstu upplýsingar um verkefnið.

Markmið verkefnisins eru að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta eða hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Árlega taka milljónir barna frá yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti.

Myndir frá Göngum í skólann má sjá á myndasíðu ÍSÍ hér.