Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18

Einelti í íþróttum

Aðgerðaráætlun gegn einelti og annarri óæskilegri hegðun

Einelti getur átt sér stað nánast hvar sem er og þar af leiðandi einnig innan íþróttahreyfingarinnar. Áhrifaríkasta tækið sem íþróttafélag hefur yfir að ráða gegn einelti eru iðkendurnir sjálfir.  Þó að meirihluti þeirra eigi ekki beina aðild að einelti veit þessi hópur oft af eineltinu löngu áður en hinir fullorðnu fá vitneskju um það.  Mikilvægt er að íþróttafélaginu takist að virkja þennan hóp „hlutlausra áhorfenda“ til að taka afstöðu gegn einelti í verki og tilkynna til forráðamanna íþróttafélags eða starfsfólks íþróttamannvirkis ef þeir verða varir við eða vitni að slíku. Mikilvægt er að trúnaður ríki milli barna og fullorðinna og að nafnleynd sé virt.  Æskilegt væri að veita starfsfólki íþróttafélags þjálfun í að þekkja einkenni eineltis.

Í Aðgerðaráætlun gegn einelti og annarri óæskilegri hegðun má meðal annars finna upplýsingar um fyrirbyggjandi aðgerðir, skilgreiningu og helstu birtingarmyndir eineltis. Þá koma einnig fram hugmyndir að verklagsreglum íþróttafélags sem hægt er að grípa til ef einstaklingur verður fyrir einelti eða annarri óæskilegri hegðun. 

Íþróttafélögum er heimilt að gera þessar reglur að sínum, breyta þeim og aðlaga eins og gagnast þeim best. Hugsunin með framsetningu þessarra reglna er fyrst og fremst sú að færa íþróttafélögum einhvers konar tæki sem þau geta nýtt sér í starfinu. 

Ef grunur leikur á að einelti eða önnur óæskileg hegðun eigi sér stað innan félags ætti að taka á málinu sem allra fyrst. Mælt er með því að á vefsíðu íþróttafélags sé að finna tilkynningarblað þar sem hægt er að koma ábendingum, m.a. um einelti, til skila til fulltrúa félagsins.

Á vefsíðu samskiptaráðgjafa íþróttahreyfingarinnar er hægt að fylla út tilkynningarform rafrænt hér.