Sviðsstjóri með kynningu fyrir ÍKFÍ
10.09.2012Sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ var með fyrirlestur um samnorræna verkefnið "Þrekraunir" á endurmenntunardegi Íþróttakennarafélags Íslands á Laugarvatni föstudaginn 7. september síðastliðinn. Þrekraunir er verkefni á vegum norrænu skólaíþróttanefndarinnar og ætlað 7. og 8. bekk grunnskóla á öllum Norðurlöndunum. Verkefnið gengur út á keppni í nokkrum líkamsæfingum þar sem áðurnefndir bekkir hafa rétt til þátttöku og geta unnið til verðlauna. Árangurinn er skráður á heimasíðu verkefnisins og sjá íþróttakennarar skólanna um skráninguna. Niðurstöður verða birtar þann 12.12. 2012 kl. 12.12.
Frekari upplýsingar um verkefnið veitir sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ á vidar@isi.is eða í síma 460-1467. Einnig er hægt að skoða heimasíðu verkefnisins sem er nordicschoolsport.com
Frekari upplýsingar um verkefnið veitir sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ á vidar@isi.is eða í síma 460-1467. Einnig er hægt að skoða heimasíðu verkefnisins sem er nordicschoolsport.com