London 2012 - Ólympíulaufið

Þar næst er hlaupið með kyndil frá Olympiu til þess staðar þar sem leikarnir fara fram og hafa kyndilhlaupin í gegnum tíðina farið víða og slegið mörg met. Á setningarhátíð Ólympíuleika er einn hápunkturinn þegar hlaupið er með kyndilinn inná leikvanginn og Ólympíueldurinn er tendraður. Hver gestgjafi reynir að útfæra Ólympíueldinn og tendrun hans á nýjan hátt og vekja þannig upp eftirvæntingu og aðdáun heimsbyggðarinnar.
Í London var tendrun Ólympíueldsins merkileg á margan hátt. Eldurinn var að þessu sinni tendraður á miðjum Ólympíuleikvanginum og var eingöngu sjáanlegur á sjálfum leikvanginum. Hann var samsettur úr 204 „laufblöðum" þar sem eldurinn logaði og þegar laufblöðin voru sett saman myndaðist stór kyndill eða skál fyrir Ólympíueldinn.
Í fjölmiðlum síðasta sumar kom fram að hver þjóð fengi að eiga eitt laufblað og var það nú í byrjun desember að vegleg sending barst frá London með sjálfu laufinu. Er þetta glæsileg smíði þar sem nafn Íslands er meðal annars grafið í laufið og það merkt sem eitt af 204 laufum leikanna.
Íþróttafréttir RUV fjölluðu um laufið í fréttum sínum og má sjá þá frétt hér, en á meðfylgjandi mynd eru Ólafur E. Rafnsson, forseti ÍSÍ og Líney R. Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ við laufið.