Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.04.2025 - 26.04.2025

Ársþing ÍF 2025

Ársþing Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) verður...
19

Alþjóðlegu Reykjavíkurleikarnir hefjast 17. janúar

14.01.2013

Reykjavík International Games eða Alþjóðlegu Reykjavíkurleikarnir eru nú haldnir í sjötta sinn en þeir eru haldnir árlega í janúar.  Á leikunum er keppt í átján íþróttagreinum og fer keppnin að mestu fram í Laugardalnum.

Greinar sem keppt er í að þessu sinni eru:
Badminton
Bogfimi
Borðtennis
Dans
Fimleikar
Frjálsar íþróttir
Júdó
Karate
Keila
Kraftlyftingar
Listhlaup á skautum
Ólympískar lyftingar
Skylmingar
Skvass
Sund
Sund fatlaðra
Tækvondo
Þríþraut

Allar nánari upplýsingar um mótið og viðburði því tengdu má finna á www.rig.is