Úthlutun úr Ferðasjóði íþróttafélaga vegna keppnisferða ársins 2012
Búið er að úthluta styrkjum úr Ferðasjóði íþróttafélaga vegna keppnisferða ársins 2012. Til úthlutunar að þessu sinni voru 61.7 m. króna. Heildarkostnaður umsókna var tæplega 416 m.króna. Alls bárust umsóknir í sjóðinn frá 117 íþrótta- og ungmennafélögum úr 21 íþróttahéraði vegna tæplega 3200 keppnisferða í 24 íþróttagreinum.
Úthlutunarfé sjóðsins kemur frá ríkinu en sjóðnum er ætlað að jafna aðstöðumun og efla íþrótta- og forvarnarstarf um land allt. ÍSÍ hefur haft umsjón með úthlutunum sjóðsins allt frá fyrstu úthlutun árið 2007. Tilvist sjóðsins er gríðarlega mikilvæg fyrir íþróttahreyfinguna enda ferðakostnaður afar stór og sligandi þáttur í rekstri íþróttafélaga.
Hér fyrir neðan má sjá töflu yfir skiptingu styrkja eftir íþróttahéruðum. Vert er að benda á að afar mismunandi fjöldi aðildarfélaga og umsókna liggur að baki samantektar hvers sambands en öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrk í sjóðinn vegna keppnisferða á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót. Ferðir sem töldu 150 km eða meira aðra leið töldust styrkhæfar í þessari úthlutun.
Heiti |
Úthlutun |
Íþróttabandalag Akureyrar |
12.716.790 |
Íþróttabandalag Reykjavíkur |
10.617.037 |
Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands |
8.333.380 |
Íþróttabandalag Vestmannaeyja |
6.419.031 |
Ungmennasamband Kjalarnesþings |
5.446.826 |
Héraðssambandið Skarphéðinn |
2.737.660 |
Ungmennasambandið Úlfljótur |
2.705.826 |
Héraðssamband Vestfirðinga |
2.604.377 |
Ungmennasamband Skagafjarðar |
2.300.375 |
Héraðssamband Þingeyinga |
1.810.809 |
Íþróttabandalag Hafnarfjarðar |
1.497.085 |
Héraðssambands Snæfellsness og Hnappadalssýslu |
1.443.921 |
Ungmennasamband Eyjafjarðar |
725.266 |
Íþróttabandalag Reykjanesbæjar |
467.911 |
Íþróttabandalag Suðurnesja |
459.912 |
Íþróttabandalag Akraness |
405.611 |
Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar |
394.485 |
Ungmennasamband Borgarfjarðar |
196.218 |
Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga |
173.817 |
Héraðssambandið Hrafna-Flóki |
128.101 |
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga |
115.591 |
61.700.029 |