Matthildur endurkjörin formaður USÚ
23.04.2013Ársþing Ungmennasambandsins Úlfljóts var haldið í Pakkhúsinu á Höfn í Hornafirði 15. apríl síðastliðinn. Vel var mætt og gekk þingið vel fyrir sig. Matthildur Ásmundsdóttir var endurkjörinn formaður sambandsins en ein breyting varð á stjórninni. Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir ritari sambandsins lét af embætti og Páll Róbert Matthíasson var kjörinn í hennar stað. Starf innan sambandsins var viðburðarríkt á síðasta ári og ljóst er að næg verkefni eru framundan við undirbúning og framkvæmd Unglingalandsmóts UMFÍ í sumar.
Rekstur sambandsins gengur vel og var niðurstaða síðasta rekstrarárs jákvæð.
Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ mætti á þingið fyrir hönd ÍSÍ og ávarpaði þingið.
Rekstur sambandsins gengur vel og var niðurstaða síðasta rekstrarárs jákvæð.
Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ mætti á þingið fyrir hönd ÍSÍ og ávarpaði þingið.