Nýr samningur við Flugfélag Íslands
ÍSÍ og Flugfélag Íslands (FÍ) hafa undirritað samning sem gildir frá 2. júlí næstkomandi þar til 1. ágúst 2014, um afsláttarkjör í innanlandsflugi FÍ - svokölluð ÍSÍ-fargjöld. Núgildandi samningur gildir til 2. júlí nk. en með undirritun nýs samnings er sambandsaðilum ÍSÍ og aðildarfélögum þeirra gert kleift að bóka ferðir á gildistíma nýja samningsins.
Flugfélag Íslands hefur verið traustur samstarfsaðili ÍSÍ og íþróttahreyfingarinnar um langt skeið og þjónusta þeirra gegnir mikilvægu hlutverki í íþróttalífi landsmanna. ÍSÍ hvetur sambandsaðila sína og aðildarfélög þeirra til að kynna sér nýja samninginn vel og nýta sér afsláttarkjörin. Samninginn má sjá hér og einnig undir efnisveitu hér á heimasíðu ÍSÍ, undir liðnum „Samningur við Flugfélag Íslands”. Þar er einnig að finna núgildandi samning.
Ingi Þór Guðmundsson forstöðumaður Sölu- og markaðssviðs FÍ og Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ við undirritun samningsins.