Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

05.12.2024 - 05.12.2024

Fundur

Fundur verður haldinn í framkvæmdastjórn ÍSÍ...
22

ÍSÍ fagnar sérstöku framlagi til Afrekssjóðs ÍSÍ

25.07.2013Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í morgun að veita Afrekssjóði ÍSÍ sérstakt framlag í formi tveggja milljón króna styrks árlega fram að Ólympíuleikunum í Ríó árið 2016 til að styðja við Anítu Hinriksdóttur afreksíþróttakonu í frjálsíþróttum og verkefni Frjálsíþróttasambands Íslands.  
ÍSÍ fagnar framlaginu sem á örugglega eftir að nýtast vel í undirbúningi fyrir helstu verkefni sem framundan eru hjá Anítu á næstu árum. 
Allir styrkir sem Afrekssjóður ÍSÍ úthlutar eru greiddir til viðkomandi sérsambands vegna þeirra verkefna sem þeir hafa verið samþykktir til.  Stjórn Afrekssjóðs ÍSÍ, í samráði við viðkomandi sérsamband, mótar frekari útfærslu á styrkveitingum.