Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Alþjóðadagur sjálfboðaliðans

05.12.2013

Í dag, fimmtudaginn 5. desember er alþjóðadagur sjálfboðaliðans. Af því tilefni kynnir ÍSÍ sjálfboðaliðavefinn Allir sem einn sem tekinn var í notkun á síðasta íþróttaþingi. Nú þegar eru um 70 manns að nota vefinn og hafa þeir skráð inn um 2.200 klukkustundir. Þessi vefur getur nýst íþróttahreyfingunni á margan hátt og því mikilvægt að fá sem flesta til að skrá inn sitt sjálfboðaliðastarf. 

  • 157.686 Íslendingar eru félagar í a.m.k. einu íþróttafélagi innan ÍSÍ eða um 49,3% landsmanna. 
  • Um 25.000 einstaklingar eru sjálfboðaliðar í stjórnum, ráðum og nefndum innan íþróttahreyfingarinnar
  • Enn fleiri sjálfboðaliðar koma að skipulagningu á kappleikjum, mótum og foreldrastarfi.

Í tilefni af Alþjóðadegi sjálfboðaliðans í dag, 5. desember 2013, vill Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands nota tækifærið og þakka öllum sjálfboðaliðum innan hreyfingarinnar fyrir sitt framlag í þágu íþrótta.
Starfsemi íþróttahreyfingarinnar byggist á stórum hluta á vinnu sjálfboðaliða. Fjöldi fólks hefur lagt íþróttahreyfingunni lið með því að sitja í nefndum, ráðum eða vinnuhópum, tekið þátt í foreldrastarfi eða aðstoðað við framkvæmd móta eða kappleikja.

Nýverið var tekinn í notkun sjálfboðaliðavefurinn „Allir sem einn“. Megin markmiðið með vefnum er að skapa vettvang fyrir sjálfboðaliða til þess að halda utan um sitt framlag hvort sem það er unnið í þágu íþróttahéraða, sérsambanda, félagsliða eða ÍSÍ. Einnig er markmiðið að fá yfirsýn yfir það fjölbreytta starf sem sjálfboðaliðar vinna innan íþróttahreyfingarinnar.

Við hvetjum alla til þess að fara inn á  „Allir sem einn“ og skrá inn sitt vinnuframlag. Með því móti náum við að gera störf sjálfboðaliða innan íþróttahreyfingarinnar sýnilegri.

Nánari upplýsingar um vefinn gefur Kristín Lilja Friðriksdóttir, verkefnisstjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, kristin@isi.is.