Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

10.04.2026 - 11.04.2026

Ársþing FRÍ 2026

Ársþing Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ)...
31

Sunddeild Breiðabliks Fyrirmyndardeild ÍSÍ

30.01.2014Sunddeild Breiðabliks fékk endurnýjun viðurkenningar sinnar sem Fyrirmyndardeild ÍSÍ á uppskeruhátíð deildarinnar miðvikudaginn 29. janúar síðastliðinn.  Sunddeildin fékk fyrst viðurkenningu sem Fyrirmyndardeild ÍSÍ árið 2003 og er þetta önnur endurnýjunin sem deildin fær.  Það var Sigríður Jónsdóttir ritari ÍSÍ og jafnframt formaður Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti formanni sunddeildarinnar Maríu Fanndal Birkisdóttur viðurkenninguna.  Á myndinni eru þær María Fanndal og Sigríður.