Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Sochi 2014 – Mótttökuhátíð í Ólympíuþorpi

06.02.2014Í dag, fimmtudaginn 6. febrúar, var íslenski hópurinn boðinn velkominn á leikana með sérstakri móttökuhátíð í Ólympíuþorpinu.  Viðstödd voru forsetahjónin, hr. Ólafur Ragnar Grímsson og frú Dorrit Moussaieff, sem og forseti ÍSÍ, Lárus L. Blöndal og eiginkona hans Soffía Ófeigsdóttir.

Mótttökuhátíðin í dag var glæsileg og með Íslandi voru þrjár aðrar þjóðir boðnar velkomnar; Venesúela, Perú og Bresku jómfrúareyjarnar.  Flutt voru tónlistaratriði auk þess sem að þjóðsöngvar landanna voru leiknir.  Aðalfararstjóri íslenska hópsins, Andri Stefánsson, færði borgarstjóra Ólympíuþorpsins gjöf, en um var að ræða stein úr íslenskri náttúru í glerramma.  Gjöf borgarstjórans var hins vegar dæmigerð rússnesk babúska merkt Sochi 2014.

Forsetahjónin skoðuðu einnig vistarverur íslenska hópsins og snæddu hádegisverð í matsal Ólympíuþorpsins.  Leyst þeim vel á aðbúnað og hrósuðu þau mikið fjallasýninni í þorpinu.

Myndir með frétt