Knattspyrnudeild Njarðvíkur Fyrirmyndardeild
25.03.2014Knattspyrnudeild Njarðvíkur fékk endurnýjun viðurkenningar deildarinnar sem Fyrirmyndardeild ÍSÍ á aðalfundi deildarinnar mánudaginn 24. mars síðastliðinn. Það var Jón Gestur Viggósson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ sem og úr stjórn Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ sem afhenti formanni deildarinnar Arngrími Guðmundssyni viðurkenninguna. Deildin hefur útbúið handbók með þeim ákvæðum sem kveðið er á um af hálfu ÍSÍ. Á fjögurra ára fresti þarf að endurnýju viðurkenninguna gagnvart ÍSÍ með uppfærðum gögnum og skilagrein. Á myndinni eru frá vinstri þeir Arngrímur Guðmundsson og Jón gestur Viggósson.