Sigurður Valur áfram formaður BTÍ
 06.05.2014
06.05.2014Ársþing Borðtennissambands Íslands var haldið í íþróttamiðstöðinni í Laugardal 22. apríl sl..  Á þinginu voru samþykkt ný lög BTÍ sem finna má á heimasíðu sambandsins, www.bordtennis.is.  
Sigurður Valur Sverrisson var endurkjörinn formaður BTÍ.  Í stjórn voru endurkjörnir Hlöðver Hlöðversson og Ingimar Ingimarsson.  Halldór Haralz sem áður var í varastjórn tók nú sæti í aðalstjórn og nýr stjórnarmaður er Matthías Stephensen.  Í varastjórn voru kjörin þau Tómas Ingi Shelton, Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir og Styrmir Stefnisson.  
Fulltrúar ÍSÍ á þinginu voru Örn Andrésson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ, sem ávarpaði þingið og flutti kveðjur frá forseta, Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ sem gegndi embætti þingforseta og Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ.
