Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

21.01.2026 - 21.01.2026

RIG ráðstefna

Í tengslum við RIG þá verður ráðstefna um...
7

Helgi Þór endurkjörinn formaður TSÍ

12.05.2014

Ársþing Tennissambands Íslands fór fram í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 29. apríl sl. Helgi Þór Jónasson var kjörinn formaður sambandsins fjórða árið í röð. Þrándur Arnþórsson og Bragi Leifur Hauksson voru kosnir í aðalstjórn til tveggja ára. Fyrir sitja í aðalstjórn Ásta Kristjánsdóttir og Gunnar Þór Finnbjörnsson.  Jónas Páll Björnsson, Jón Axel Jónsson, Júlíana Jónsdóttir og Raj K. Bonifacius voru kjörin í varastjórn.

Fulltrúi ÍSÍ á þinginu var Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir, sem einnig gegndi embætti þingforseta, og Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ.