Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Aðalfundur Smáþjóðaleikanna er um helgina

16.05.2014Í gær mættu til landsins fulltrúar frá öllum þeim þjóðum sem taka þátt í Smáþjóðaleikunum á Íslandi 1.- 6. júní 2015. Alls eru níu þjóðir sem taka þátt í leikunum en það eru Andorra, Kýpur, Liechtenstein, Lúxemborg, Malta, Mónakó, San Marínó, Svartfjallaland og Ísland. Í dag, þann 16. maí verður haldinn fundur Tækninefndar Smáþjóðaleikanna þar sem er ítarlega farið yfir öll þau atriði er lúta að keppnisgreinunum. Keppt verður í blaki, borðtennis, frjálsíþróttum, golfi, júdó, körfuknattleik, sundi, strandblaki, tennis, skotfimi og fimleikum. Á leikunum á næsta ári verður í fyrsta sinn keppt í golfi.

Farið verður í skoðunarferð í öll mannvirki sem notuð verða á leikunum og hótel og aðstæður skoðaðar. Aðalvettvangur leikanna verður í Laugardalnum, með öllum þeim íþróttamannvirkjum sem þar eru, en þau hótel sem notuð verða fyrir þátttakendur eru flest í göngufæri við Laugardalinn. Aðalfundur Smáþjóðaleikanna verður haldin á laugardag og mun Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ stýra þeim fundi.

Heimasíða leikanna 2015 er www.iceland2015.is og fésbókarsíða leikanna er www.facebook.com/gsse2015