Flóðin á Balkanskaga
Náttúruhamfarirnar á Balkanskaga hafa varla farið fram hjá neinum en tugir manns hafa látist þar vegna gríðarlegra flóða og eyðileggingin er mikil. Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands hefur fengið send erindi frá Ólympíunefnd Serbíu og Ólympíunefnd Bosniu & Herzegovinu þar sem óskað er eftir aðstoð frá íþróttahreyfingunni um allan heim, bæði í formi fjárframlaga og eins ýmisskonar varnings.
ÍSÍ vill koma á framfæri við sambandsaðila sína söfnunarsíma Rauða krossins 904 1500, 904 2500 eða 904 5500. Síðustu fjórar tölurnar í hverju númeri segja til um þá styrkupphæð sem skuldfærist af símreikningi viðkomandi. Eins er hægt að leita upplýsinga á vefsíðu Rauða Krossins, www.raudikrossinn.is um aðrar mögulegar leiðir til að styrkja söfnunina.
Allt söfnunarfé rennur beint til neyðaraðgerða Rauða krossins vegna flóðanna.