Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fór fram 14.júní

13.06.2014

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fór fram í 25. skipti laugardaginn 14. júní. Góð þátttaka var í hlaupinu. Um 15.000 konur tóku þátt á 85 stöðum út um allt land og á um 20 stöðum í 12 löndum erlendis. Um 4500 konur hlupu í Garðabænum, 1500 í Mosfellsbæ, 500 á Akureyri og um 600 konur erlendis. Boðið var upp á mismunandi vegalengdir allt frá 2 km. upp í 10 km.. Mikil og góð stemning var hjá þátttakendum þar sem ömmur, mömmur, dætur og vinkonur hreyfðu sig og skemmtu sér saman. 

Að þessu sinni var Sigríður Axels Nash elsti þátttakandinn sem tók þátt í hlaupinu í Garðabæ. Sigríður er fædd árið 1919 og er því 95 ár gömul. Sígríður fékk grip sem ÍSÍ og Stjarnan gáfu til minningar um Lovísu Einarsdóttir, íþróttakennara og upphafskonu Kvennahlaupsins.

Íþrótta- og Ólymíusamband Íslands þakkar konum fyrir þátttökuna í ár sem og síðustu 25 ár. Einnig þakkar ÍSÍ Sjóvá, aðal samstarfsaðila Kvennahlaupsins, fyrir stuðninginn sem og öðrum samstarfsaðilum; Embætti landlæknis, Morgunblaðinu, Ölgerðinni, NIVEA og Merrild.

Myndir með frétt