Kristinn fimmti í sínum riðli
18.08.2014
Kristinn Þórarinsson synti í annað sinn á Ólympíuleikum ungmenna í dag. Hann keppti þá í 200m. fjórsundi og var á tímanum 2:06.90, eða 2.59sek. á eftir sigurvegaranum í riðlinum, Austuríkismanninum Sebastian Steffan. Kristinn endaði fimmti í sínum riðli af sjö sundmönnum. Sigurvegari fjórsundsins er Benjamin Gratz frá Ungverjalandi, en hann synti í úrslitum á tímanum 2.01.08.
Kristinn keppir næst á morgun þann 19. ágúst í 50m. baksundi.
Hægt er að nálgast úrslit hér: http://www.nanjing2014.org/en/en_sports/GamestimeResults.htm