Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

10.04.2026 - 11.04.2026

Ársþing FRÍ 2026

Ársþing Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ)...
2

Skipulag íþróttamála - Hádegisfundur 14. nóv.

14.11.2014

Föstudaginn 14. nóvember verður opinn hádegisfundur í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, á þriðju hæð í fundarsal D.


Kjartan Freyr Ásmundsson kynnir niðurstöður úr meistararitgerð sinni, Skipulag íþróttamála - Getur íþróttahreyfingin gert betur? Kjartan Freyr hefur starfað innan íþróttahreyfingarinnar í fjöldamörg ár og lauk nýverið meistaranámi í stjórnun og stefnumótun frá viðskiptadeild HÍ. Gefið verður svigrúm fyrir spurningar og umræður að loknu erindinu.

Skráning fer fram á skraning@isi.is. Fundurinn verður sendur út á netinu. Til að tengjast útsendingu frá fundinum er hægt að smella hér.