Haraldur Þórarinsson heiðraður með Gullmerki ÍSÍ
16.11.2014
Haraldur Þórarinsson fyrrverandi formaður Landssambands hestamannafélaga (LH) var heiðraður með Gullmerki ÍSÍ þann 14. nóvember síðastliðinn á Formannafundi ÍSÍ. Það var Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ sem sæmdi Harald merkinu. Haraldur lét af embætti formanns LH í byrjun nóvember síðastliðinn eftir 16 ára samfellt starf í forystu sambandsins. Hann var kjörinn í stjórn LH árið 1998 og gegndi embætti varaformanns allt til ársins 2006 er hann var kjörinn formaður sambandsins. Haraldur hefur fylgt sambandinu í gegnum mjög mikinn vöxt og þróun en LH er nú þriðja stærsta sérsamband ÍSÍ með yfir 11 þúsund iðkendur.