Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
26.03.2026 - 26.03.2026

Ársþing HSK 2026

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
20

Ingigerður endurkjörin formaður ÍRB

29.06.2015Ársþing Íþróttabandalags Reykjanesbæjar var haldið 23. júní í fundarsal íþróttaakademíunnar í Reykjanesbæ.  Þingfulltrúar voru 23 frá 5 af 9 aðildarfélögum IRB. Ingigerður Sæmundsdóttir formaður IRB setti þingið og bauð þingfulltrúa og gesti velkomna. Formaður flutti skýrslu stjórnar og gjaldkeri sambandsins endurskoðaða reikninga þess.
Tillaga um breytingu á reglugerð vegna tilnefninga á íþróttafólki ársins í Reykjanesbæ var samþykkt, en breytingin felur í sér að framvegis verði bæði íþróttakona og íþróttakarl ársins tilnefnd.  Hliðstætt mun einnig gilda um íþróttafólk sérgreina á sambandssvæðinu. Ingigerður var endurkosin formaður næsta starfsárs. Fulltrúi ÍSÍ var Sigríður Jónsdóttir og ávarpaði hún þingfulltrúa og flutti kveðjur frá forseta og framkvæmdastjórn.