Lestu ÍSÍ-Fréttir rafrænt
06.10.2015
ÍSÍ- Fréttir komu út í september.
Þar má meðal annars lesa um Evrópuleikana í Bakú 2015, Ólympíuhátíð æskunnar í Tbilisi 2015 og Ólympíuleikana í Ríó 2016 ásamt því að skoða skemmtilegar myndir af íslenskum þátttakendum frá þessum slóðum.
Einnig eru í blaðinu fréttir af margvíslegum verkefnum ÍSÍ síðustu mánuði. Blaðið má lesa rafrænt hér.