Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.04.2025 - 26.04.2025

Ársþing ÍF 2025

Ársþing Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) verður...
19

Nýr formaður kjörinn í MSÍ

24.11.2015Ársþing Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambands Íslands (MSÍ) fór fram 21. nóvember sl. í húsnæði ÍSÍ í Laugardal. Eftir níu ára setu sem formaður sambandsins steig Karl Gunnlaugsson til hliðar og var Hrafnkell Sigtryggsson einróma kosinn nýr formaður MSÍ. Voru Karli færðar þakkir fyrir vel unnin störf í embætti formanns.
Ný aðalstjórn MSÍ var kosin og bættust Bjarki Sigurðsson og Baldvin Gunnarsson í stjórnina en auk þeirra sitja í stjórn þeir Jón Bjarni Jónsson og Guðbjartur Stefánsson. Í varastjórn voru kosnir þeir Unnar Már Magnússon, Karl Gunnlaugsson og Björk Erlingsdóttir.