Eygló Ósk Gústafsdóttir kjörin íþróttamaður ársins 2015
Það var mikið um dýrðir í Silfurbergi í Hörpu fyrr í kvöld þegar Eygló Ósk Gústafsdóttir sundkona var útnefnd íþróttamaður ársins 2015 af Samtökum íþróttafréttamanna. Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður var í öðru sæti og Hrafnhildur Lúthersdóttir sundkona var í þriðja sæti. Nánari upplýsingar um kjör íþróttamanns ársins eru aðgengilegar á heimasíðu samtaka íþróttafréttamanna.
ÍSÍ veitti íþróttamönnum einstakra íþróttagreina viðurkenningar í kvöld en allar upplýsingar um þá verðlaunahafa eru aðgengilegar hér á heimasíðu ÍSÍ.
Tveir einstaklingar voru teknir inn í Heiðurshöll ÍSÍ þau Sigríður Sigurðardóttir handknattleikskona og Ríkharður Jónsson knattspyrnumaður.
Samtök íþróttafréttamanna veittu nú í fjórða sinn viðurkenningu til þjálfara ársins og var það Heimir Hallgrímsson sem hlaut þann heiður. Viðurkenning til liðs ársins fór að þessu sinni til íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu.
ÍSÍ óskar öllum verðlaunahöfum kvöldsins til hamingju með viðurkenningar sínar.