Dómarar á Ólympíuleikunum í Ríó
17.03.2016
Handknattleikssamband Íslands fékk þær gleðifréttir fyrir stuttu að handknattleiksdómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson, eitt fremsta dómararpar landsins, hafi verið tilnefndir af Alþjóðahandknattleikssambandinu sem dómarar í handknattleik á Ólympíuleikunum í Ríó í sumar. Þeir Anton Gylfi og Jónas hafa lengi stefnt að því að fá að dæma á Ólympíuleikum og eru þetta því gleðitíðindi.
ÍSÍ óskar þeim félögum innilega til hamingju með áfangann.