Aðalfundur Smáþjóðaleikanna (GSSE)
Um helgina fór fram aðalfundur Smáþjóðaleikanna (GSSE) auk fundar tækninefndar leikanna. Hefð er fyrir því að halda slíka fundi rúmu ári fyrir leika í því landi sem verður í gestgjafahlutverki ári síðar. Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ og Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ sóttu fundinn auk Guðmundar Þ. Harðarsonar fulltrúa Íslands í tækninefnd GSSE.
Samhliða fundunum voru þau mannvirki skoðuð sem notuð verða við keppni á leikunum á næsta ári. San Marínó hefur tvisvar áður haldið leikana, þ.e. 1985 þegar fyrstu leikarnir fóru fram og svo aftur árið 2001. Á aðalfundinum var samþykkt að Andorra yrði gestgjafi árið 2021 en áður hafði verið ákveðið að leikarnir 2019 færu fram í Svartfjallalandi og verður það í fyrsta sinn sem leikarnir verða haldnir þar. Engar stórvægilegar breytingar voru gerðar á reglum leikanna, en hins vegar var samþykkt að skoða betur fjölmörg atriði sem snúa að fjölda keppenda í greinum, þær greinar sem keppt er í á leikunum og fjárhagslegar skuldbindingar þátttökuþjóða.
Reiknað er með að um 1.000 íþróttamenn taki þátt í leikunum á næsta ári og er það helst framboð á hótelgistingu sem veldur framkvæmdaaðilum áhyggjum. Á fundinum var lukkudýr leikanna „Sammy“ kynnt fyrir þátttökuþjóðum sem og heimasíðan www.sanmarino2017.sm