Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Ríó 2016 - Paralympics

23.08.2016

Paralympics (Ólympíumót fatlaðra) fer fram í Ríó í Brasilíu 7. - 18. september 2016. Fimm keppendur úr röðum fatlaðra tókst að tryggja sér þátttökurétt á leikunum. Hópinn skipa þrír sundmenn, einn frjálsíþróttamaður og einn bogfimimaður. Þetta er í fyrsta sinn sem bogfimikeppandi verður fulltrú Íslands á leikunum.

Keppendur Íslands á Paralympics 2016 eru:

Jón Margeir Sverrisson – sund - Fjölnir
Sonja Sigurðardóttir – sund – ÍFR
Thelma Björg Björnsdóttir – sund – ÍFR
Helgi Sveinsson – frjálsíþróttir – Ármann
Þorsteinn Halldórsson – bogfimi – Boginn

Ánægjulegt er að greina frá því að íslenskum keppendum fjölgar um einn á Paralympics frá síðustu leikum í London 2012, en þá átti Ísland fjóra fulltrúa, tvo í sundi og tvo í frjálsíþróttum. Það fjölgar því einnig um eina íþróttagrein hjá Íslendingum. Ljóst er að afreksmenn úr röðum fatlaðra eru á mikilli siglingu þessi dægrin, þar sem nokkur fjöldi reyndi linnulaust við Paralympic-lágmörkin þetta árið, og því enn ánægjulegra að sjá að hópurinn sem ætlar sér að taka þátt í stærsta íþróttaverkefni hvers fatlaðs afreksmanns fer stækkandi.

Mynd/ Efri röð frá vinstri: Jón Margeir Sverrisson, Þorsteinn Halldórsson og Helgi Sveinsson.
Neðri röð frá vinstri: Sonja Sigurðardóttir og Thelma Björg Björnsdóttir.

Myndir með frétt