Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Erzurum
Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar fer fram í Erzurum í Tyrklandi 12. – 17. febrúar. Ísland á sem fyrr keppendur á leikunum, nú í alpagreinum, skíðagöngu, listskautum og á snjóbretti. Keppendur á leikunum eru á aldrinum 14 til 18 ára, þátttökuþjóðir eru 34 og þátttakendur eru um 1200. Setningarhátíðin fer fram kvöldið 12. febrúar, kl.19:30 að staðartíma (16:30 á íslenskum tíma). Lokahátíðin fer fram kvöldið 17. febrúar á sama tíma og setningarhátíðin.
Íslenski hópurinn fór utan í morgun. Aðalfararstjóri í ferðinni er Örvar Ólafsson verkefnastjóri á Afreks- og Ólympíusviði ÍSÍ og sjúkraþjálfari er Halla Sif Guðmundsdóttir. Aðrir í hópnum eru:
Alpagreinar | |
Georg Fannar Þórðarson | Keppandi |
Jökull Þorri Helgason | Keppandi |
Harpa María Friðgeirsdóttir | Keppandi |
Katla Björg Dagbjartsdóttir | Keppandi |
María Finnbogadóttir | Keppandi |
Sigríður Dröfn Auðunsdóttir | Keppandi |
Aron Andrew Rúnarsson | Þjálfari |
Sigurgeir Halldórsson | Flokksstjóri og þjálfari |
Bretti | |
Aron Kristinn Ágústsson | Keppandi |
Bjarki Jarl Haraldsson | Keppandi |
Tómas Orri Árnason | Keppandi |
Einar Rafn Stefánsson | Flokksstjóri og þjálfari |
Listskautar | |
Herdís Birna Hjaltalín | Keppandi |
Rebecca Lynn Boyden | Flokksstjóri og þjálfari |
Skíðaganga | |
Anna María Daníelsdóttir | Keppandi |
Arnar Ólafsson | Keppandi |
Pétur Tryggvi Pétursson | Keppandi |
Sigurður Arnar Hannesson | Keppandi |
Steven Gromatka | Flokksstjóri og þjálfari |
Gunnar Bjarni Guðmundsson | Þjálfari |
Erzurum er bær í austurhluta Tyrklands með um 300 þúsund íbúa. Afar góð aðstaða er fyrir hendi í þeim greinum sem keppt verður í á leikunum. Mörg af mannvirkjunum voru byggð fyrir vetrarleika stúdenta sem haldnir voru í bænum árið 2011. Þátttakendur á leikunum munu dvelja í íbúðabyggingum sem tilheyra háskóla bæjarins.
Heiti hátíðarinnar er Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar og er „Fair Play“ eða háttvísi eitt af megin einkunnarorðum hátíðarinnar. Mikið er lagt upp úr því að hátíðin sé skemmtun og að þátttakendur kynnist ungu fólki frá öðrum löndum Evrópu. Ekki er lagt upp með að áherslan sé sú sama og á Ólympíuleikum þeirra fullorðnu eða á heimsmeistarakeppnum.
Á myndunum sem fylgir má sjá íslenska hópinn á Leifsstöð í morgun. Myndir frá leikunum verða aðgengilegar á myndasíðu ÍSÍ.
Hér má sjá vefsíðu leikanna.
Facebook-síða leikanna.
Youtube-síða leikanna.
Frekari upplýsingar veitir Örvar Ólafsson aðalfararstjóri leikanna á orvar@isi.is