Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Fylgstu með Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar á samfélagsmiðlum

14.07.2017

Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar verður haldin í borginni Györ í Ungverjalandi 23. - 29. júlí 2017. 

Fyrsta hátíðin var haldin í Brussel 1991 og hét þá Ólympíudagar æskunnar.

ÍSÍ hefur jafnan reynt að senda fríðan hóp ungs fólks til leikanna og í Brussel 1991 voru þátttakendur 27 úr fjórum íþróttagreinum. Fyrsta árið var eingöngu sumarhátíð en strax 1993 var einnig komið á vetrarhátíð og hefur svo verið síðan þá.

Heiti hátíðarinnar, Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar, vísar í „Fair Play“ eða háttvísi, sem er eitt af megin einkunnarorðum hátíðarinnar. Mikið er lagt upp úr því að þetta sé skemmtun, og þátttakendur kynnist ungu fólki frá öðrum löndum Evrópu. Ekki er lagt upp með að áherslan sé sú sama og á Ólympíuleikum þeirra fullorðnu eða á heimsmeistarakeppnum.

Vefsíða hátíðarinnar er gyor2017.

Hátíðin er á Facebook og Twitter.