Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍA 2024

Ársþing Íþróttabandalags Akraness (ÍA) verður...
18.04.2024 - 18.04.2024

Ársþing ÍS 2024

Ársþing Íþróttabandalags Suðurnesja (ÍS)...
18

Norræna skólahlaupið sett 8. september á Akureyri

06.09.2017Norræna skólahlaupið verður sett í Giljaskóla á Akureyri föstudaginn 8. september 2017 kl. 10:00. Norræna skólahlaupið er árlegt verkefni sem grunnskólum á Norðurlöndunum býðst að taka þátt í. Hlaupið var fyrst haldið árið 1984 og verður haldið í 34. skipti í ár. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sér um framkvæmd verkefnisins á Íslandi.

Markmiðið með Norræna skólahlaupinu er að hvetja nemendur til að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Á síðasta ári tóku rúmlega 15.000 grunnskólanemendur frá um 63 skólum á Íslandi þátt í hlaupinu og hlupu til samans um 40 hringi í kringum landið, en hægt er að velja um þrjár vegalengdir 2,5, 5 og 10 kílómetra. Árið 2015 tengdist verkefnið í fyrsta sinn Íþróttaviku Evrópu, sem er verkefni á vegum Evrópuráðsins. Af því tilefni var bryddað upp á þeirri nýjung að draga út þrjá skóla sem tóku þátt í Norræna skólahlaupinu og luku hlaupinu fyrir lok september. Sá hátturinn var einnig á árið 2016. Til mikils er að vinna í ár, eins og önnur ár, ef skólar ljúka hlaupi fyrir lok september því þrír skólar fá 100.000 króna inneign í Altis. Altis selur vörur til íþróttaiðkunar sem nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu.

Sandra María Jessen landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður Þórs/KA mun ávarpa unglingadeildina fyrir hlaupið og Blossi, lukkudýr Smáþjóðaleikanna 2015, ætlar að vera á staðnum og hvetja krakkana áfram í hlaupinu. Mjólkursamsalan, sem hefur styrkt hlaupið frá upphafi, mun gefa krökkunum ískalda mjólk í lok hlaupsins.

Verkefnið nýtur stuðnings ÍSÍ, Mjólkursamsölunnar og Evrópuráðsins, og er í samvinnu við Íþrótta- og heilsufræðifélag Íslands.