Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Íþróttavika Evrópu 23. - 30. september

15.09.2017

Í dag er ein vika þar til Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) verður haldin víðsvegar um álfuna, vikuna 23. – 30. september nk. Markmið íþróttavikunnar er að kynna íþróttir og hreyfingu fyrir almenningi í Evrópu og er hún ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sérstök áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og að hvetja Evrópubúa til að sameinast undir slagorðinu #BeActive til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.

Þetta verður í annað sinn sem íþróttavikan er haldin hér á landi en það var fyrst gert árið 2015.

Hér má sjá vefsíðuna Beactive.is

Hér má sjá vefsíðu European Week of Sport.