Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

29

Norðlenskar verðlaunaafhendingar í Lífshlaupinu 2018

13.03.2018

Norðlenskir þátttakendur stóðu sig með prýði í Lífshlaupinu 2018 enda öflugt afreksfólk við Eyjafjörðinn og í innsveitum. Því miður átti enginn þeirra heimangengt til að mæta á verðlaunaafhendingu Lífshlaupsins sem fram fór þann 23 febrúar sl. ÍSÍ býr hins vegar svo vel að eiga frábæra fulltrúa á Akureyri, en Viðar Sigurjónsson skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri og Ingi Þór Ágústsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ tóku sig til og veittu verðlaunahöfum viðurkenningar nýlega.

Fyrsti áfangastaður var Framhaldsskólinn á Húsavík sem átti mjög gott mót sem skilaði sér með gullverðlaunum í sínum fjöldaflokki í framhaldsskólakeppninni. Viðar Sigurjónsson afhenti fulltrúa nemenda FSH gullskjöldinn góða og að því loknu var stillt upp í hópmynd af fríðum framhaldsskólanemum ásamt kennurunum Rakel Dögg Hafliðadóttur og Ingólfi Freyssyni.

Afreksbærinn Akureyri lét ekki sitt eftir liggja og næsti viðkomustaður var Oddeyrarskóli sem hafði átt hörkukeppni bæði í grunnskóla- og vinnustaðakeppninni. Niðurstaðan var sérlega glæsileg eða gullverðlaun fyrir nemendur og bronsverðlaun starfsfólks fyrir bæði hreyfidaga og hreyfimínútur. Fyrir þennan árangur veitti Akureyrarbær skólanum sérstakan bikar ásamt forláta Lífshlaupsköku. Ingi Þór Ágústsson veitti stoltu starfsfólki Oddeyrarskóla verðlaunin og veitti Kristín Jóhannesdóttir skólastjóri þeim formlega viðtöku.

Að því loknu lá leiðin í Síðuskóla sem lenti í 3. sæti í sínum fjöldaflokki í grunnskólakeppninni og hlaut því bronsskjöld fyrir sitt fína framlag. Ingi Þór steig aftur á stokk til að afhenda formanni nemendaráðs viðurkenninguna.

Síðasta verðlaunaheimsóknin var í Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit en nemendur þar höfðu staðið sig með prýði í grunnskólakeppninni og hlutu því bronsskjöld sem staðfestingu á flottri frammistöðu. Tryggvi Jóhann Heimisson íþróttakennari skipulagði þátttöku nemenda í Lífshlaupinu innan skólans.

ÍSÍ þakkar öllum þátttakendum á Norðurlandi sérstaklega fyrir þeirra þátttöku í Lífshlaupinu og hvetur þá til áframhaldandi afreka í næsta Lífshlaupi og öðrum hvatningarverkefnum ÍSÍ.

Myndir með frétt