Skilafrestur starfsskýrslna til ÍSÍ að renna út
Sambandsaðilar ÍSÍ, íþrótta- og ungmennafélög og deildir þeirra eru minnt á að skilafrestur á starfsskýrslum til ÍSÍ rennur út um helgina, eða nánar tiltekið 15. apríl nk. ÍSÍ hvetur alla viðkomandi til að ljúka skilum sem fyrst í gegnum Felix, félagakerfi ÍSÍ og UMFÍ, https://felix.is.
Bent er á að leiðbeiningar um starfsskýrsluskil er að finna í Handbók sem hægt er að nálgast inni í Felix kerfinu, þegar búið er að skrá sig þar inn. Nánari upplýsingar og aðstoð veitir Elías Atlason, verkefnastjóri Felix (elias@isi.is) á skrifstofu ÍSÍ.
Þeim samböndum og félögum sem þegar hafa skilað inn starfsskýrslu vegna ársins 2017 er þakkað fyrir skjót og góð skil.
Aðili, sem ekki skilar skýrslum í tæka tíð, getur misst rétt til þátttöku í íþróttaþingi, svo og í opinberum íþróttamótum þar til skýrslum hefur verið skilað eða samið við framkvæmdastjórn ÍSÍ um stuttan frest til þess, sbr. 8. grein laga ÍSÍ.
Þeir sambandsaðilar sem ekki hafa enn haldið sína aðalfundi, geta sótt um frest til að skila ársreikningshluta skýrslunnar fram yfir aðalfund viðkomandi.
Umsókn um frest þarf að senda skriflega á netfangið isi@isi.is með afriti til viðkomandi íþróttahéraðs.