19. Skautaþing ÍSS
16.04.2018
19. Skautaþing ÍSS fór fram þann 14. apríl sl. í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Ný stjórn var kosin, en Guðbjört Erlendsdóttir var áfram kjörinn formaður. Auk hennar í stjórn voru kjörin Svava Hróðný Jónsdóttir, Friðjón Gudjohnsen, Heba Finnsdóttir og Jóna Jónsdóttir. Varamenn voru kjörnir Guðrún Elíasdóttir og Oksana Shalabai. Þingforseti var Sigríður Jónsdóttir, varaforseti ÍSÍ, en hún var einnig fulltrúi ÍSÍ á þinginu.
Farið var yfir skýrslu stjórnar, ársskýrslur voru lagðar fram ásamt fjárhagsáætlun næsta árs.
Lagabreytingatillögur voru kynntar og er hægt að sjá ný lög sambandsins hér.
Fundargerð ásamt skýrslu stjórnar er hægt að skoða hér.
Góð mæting var á ársþingið, en allir 19 fulltrúar voru mættir.