Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Merki Bakú 2019

07.08.2018

Nýlega birti skipulagsnefnd Ólympíuhátíðar Evrópuæskunnar merki hátíðarinnar, sem fram fer í Bakú í Azerbaijan 21. - 27. júlí 2019. Mun þetta vera í fimmtánda skiptið sem Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar fer fram að sumri til, en einnig fer fram hátíð að vetri til sama ár. Hönnun merkis hátíðarinnar í Bakú byggir á anda vináttu, háttvísi og umburðarlyndis.

Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar er að mörgu leyti eins og smækkuð útgáfa af Ólympíuleikum. Keppnisgreinar á hátíðinni eru frjálsíþróttir, körfuknattleikur, hjólreiðar, fimleikar, handbolti, júdó, sund, tennis og blak. Að þessu sinni verður einnig keppt í glímu. Keppendur koma frá 50 Evrópuþjóðum og eru þátttakendur um 3.600 talsins.

Ólympíuhátíðin er sett með athöfn sem nær hámarki þegar Ólympíueldur er tendraður og hátíðinni lýkur með lokaathöfn og skemmtun. Hátíðin hefur verið mikilvæg fyrir ungt íþróttafólk álfunnar í gegnum tíðina. Margir af fyrri keppendum á hátíðinni hafa síðar náð alla leið á efsta getustigi í sínum greinum. Hátíðin er einnig frábært tækifæri fyrir unga sjálfboðaliða að öðlast reynslu af því að vera hluti af skipulagningu og framkvæmd á stórum viðburði og að hitta fólk frá öðrum evrópskum löndum og efla þannig samband Evrópubúa. Íslendingar munu eiga sína fulltrúa íþróttafólks á hátíðinni, auk flokksstjóra, þjálfara, dómara og fararstjórnar.