Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

28

Fyrsta rafbílarallýið á Íslandi

21.09.2018

Dagana 21. og 22. september heldur Akstursíþróttasamband Íslands (AKÍS) fyrsta alþjóðlega rafbílarallýið sem fram fer hér á landi. Keppnin er ein af tíu umferðunum í alþjóðlegu meistarakeppni FIA 2018 í nákvæmnisakstri rafbíla. Keppt er á óbreyttum rafbílum og getur hver sem er með ökuréttindi tekið þátt. Þrír erlendir keppendur á mótaröðinni eru skráðir til leiks. Markmið Alþjóða aksturssambandsins, FIA, með eRally er að kynna nýjustu tækni ökutækja sem ætlað er að spara orku sem gefa frá sér minnsta mögulega magn mengunar og koltvísýrings. Því er einnig ætlað að hvetja alla ökumenn til að breyta akstri með áherslu á umhverfisvernd og sjálfbærni bílaumferðar með því að nota rafmagn sem drifkraft ökutækja. Hluti af þessu átaki FIA var að hleypa af stokkunum mótaröð undir heitinu FIA Electric and New Energy Championship til að leggja aukna áherslu á mikilvægi þessa.

Rafbílarallýið er í tveimur hlutum og samtals eru eknir 6 leggir á tveimur dögum. eRallið hefst í dag, föstudaginn 21. september, kl 09:00 þegar fyrstu keppendur verða ræstir frá höfuðstöðvum ON að Bæjarhálsi 1. Rallýinu lýkur á sama stað en keppendur koma í mark laugardaginn 21. september um kl. 15:00 og verður þá ljóst hver sigrar í keppninni. eRally FIA er ekki kappakstur heldur nákvæmnisakstur. Alltaf er ekið innan löglegs hámarkshraða og gengur keppnin út á að aka fyrirfram ákveðna leið samkvæmt leiðabók og á hraða sem gefinn er upp í leiðabókinni. Á nokkrum stöðum á leiðinni eru mælistaðir, þar sem bíllinn þarf að vera staddur á réttri sekúndu, annars fást refsistig. Akstursleggirnir eru sex talsins og eru eknir á keppnisdögunum tveimur. Keppt er á almennum opnum vegum í hefðbundinni umferð. Valdar voru fallegar leiðir í nágrenni Reykjavíkur, að mestu malbikaðar en einnig eru nokkrir malarvegir. Leyfileg keppnistæki eru skilgreind í reglum FIA Electric og New Energy Championship. Keppnin er eingöngu ætluð óbreyttum bílum þar sem drifrás er með rafmagni, bílum sem eru með gilda skráningu fyrir almenna notkun á vegum, án nokkurs konar breytinga á bílnum. Þetta gerir keppendum mögulegt að nota eigin bíla sem þeir nota daglega. Frumgerðir bíla eru einnig leyfðar ef þær eru með gilt akstursleyfi innan ESB.

Nánari upplýsingar eru á www.erally.is og með tölvupósti á erally@erally.is.