Samráðsgátt - ósk um umsagnir og ábendingar
![](/library/Myndir/Logo/Mennta-%20og%20menningarmlarduneyti.jpg?proc=400x400)
Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur opnað samráðsgátt vegna máls nr. 134/2018 – Áform um frumvarp til laga um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsmála.
Samráðið stendur yfir til 2. október nk. og er óskað eftir umsögnum frá íþróttahreyfingunni.
Samráðsgáttina er að finna á samradsgatt.island.is eða með því að smella hér og þar eru einnig nánari upplýsingar um efnið.
Vakin er athygli á því að umsagnir hagsmunaaðila birtast opinberlega í þessu máli strax og þær berast.
Íþróttahreyfingin er hvött til að nýta samráðsgáttina til að koma athugasemdum og skoðunum á framfæri.