Hestamannafélagið Hörður Fyrirmyndarfélag ÍSÍ
26.10.2018
Hestamannafélagið Hörður í Mosfellsbæ fékk endurnýjun viðurkenningar félagsins sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ miðvikudaginn 24. október síðastliðinn á aðalfundi félagsins í félagsheimilinu Harðarbóli. Það var Þráinn Hafsteinsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ og jafnframt formaður Þróunar- og fræðslusviðs sem afhenti Hákoni Hákonarsyni formanni félagsins viðurkenninguna. Á myndinni eru þeir Hákon (til vinstri) og Þráinn.