Formannafundur ÍSÍ 2018
![](/library/Myndir/Logo/ISI-logo_2012a%20-%20Copy%20(1).jpg?proc=400x400)
Árlegur Formannafundur ÍSÍ verður haldinn föstudaginn 16. nóvember nk. í Laugardalshöllinni. Fundurinn er upplýsingafundur framkvæmdastjórnar ÍSÍ og formanna og framkvæmdastjóra sérsambanda, héraðssambanda og íþróttabandalaga, þar sem framkvæmdastjórn ÍSÍ gefur skýrslu um helstu þætti í starfsemi ÍSÍ og verkefni á milli þinga.