Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Skilafrestur framboða til kjörs framkvæmdastjórnar ÍSÍ

01.04.2019

74. Íþróttaþing ÍSÍ fer fram í Gullhömrum Grafarholti í Reykjavík dagana 3.-4. maí nk. Samkvæmt 11. grein laga ÍSÍ skulu tilkynningar um framboð til forseta ÍSÍ og framkvæmdastjórnar ÍSÍ berast til kjörnefndar Íþróttaþings eigi síðar en þremur vikum fyrir þingið, þ.e. 12. apríl næstkomandi.

Minnt er á að til að tilkynning um framboð teljist löglegt, skal eitt ólympískt sérsamband og eitt héraðssamband/íþróttabandalag hafa lýst yfir stuðningi við framboðið. Á þinginu í maí verður kosið um sjö meðstjórnendur til fjögurra ára. Hægt er að nálgast eyðublaðið um framboðsyfirlýsingu með því að smella hér.