Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

20

Skil á starfsskýrslum sambandsaðila

10.04.2019

ÍSÍ minnir sambandsaðila sína á að skila inn starfsskýrslu til ÍSÍ í gegnum Felix kerfið fyrir 15. apríl nk. Þeir sambandsaðilar sem ekki hafa enn haldið sína aðalfundi, geta sótt um frest til að skila ársreikningshluta skýrslunnar fram yfir aðalfund viðkomandi. Umsókn um frest þarf að senda skriflega á netfangið isi@isi.is, með afriti til viðkomandi íþróttahéraðs. Um 24% félaga hafa þegar skilað inn starfsskýrslum en betur má ef duga skal. ÍSÍ hvetur íþrótta- og ungmennafélög til þess að virða lögbundinn skilafrest starfsskýrslna.

Leiðbeinandi upplýsingar varðandi starfsskýrsluskil og aðstoð þar að lútandi er að finna í eftirfarandi skjölum:

Bréf ÍSÍ starfsskýrsluskil 2019

Ferli - Hvernig á að ganga frá starfsskýrslu í Felix

Felix 2.0 upplýsingar

Nánari upplýsingar varðandi starfsskýrsluskil veitir Elías Atlason, verkefnastjóri Felix. Netfangið hans er elias@isi.is og sími 514 4000.