Áhugaverður hádegisfyrirlestur um næringarfræði og heilaskaða í íþróttum
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Fraedslusvid/Skjar_You%20know%20nothing%20Jon%20Snow.jpg?proc=400x400)
Næstkomandi miðvikudag 8. maí mun Dr. Kevin Tipton prófessor í íþróttanæringafræði við Íþróttaháskólann í Durham halda fyrirlestur um næringu og heilahristing (forvarnir og sem aðstoð við bata) sem ber heitið “You know nothing Jon Snow: Nutrition for prevention and treatment of sport-related brain injuries” . Fyrirlesturinn verður haldinn í Háskólanum í Reykjavík í stofu M104 og hefst kl. 12.