Þórhallur nýr formaður ÍHÍ
![](/library/Myndir/Frettamyndir/Sambandsadilar/Ishokk%c3%being%20%c3%9eossi%20Helgi.jpg?proc=400x400)
Ársþing Íshokkísambands Íslands, Íshokkíþing, var haldið á Akureyri þann 11. maí síðastliðinn og þar var Þórhallur Viðarsson kosinn formaður.
Aðrir í stjórn ÍHÍ eru Guðrún Kristín Blöndal, Eggert Steinsen, Kristín Birna Fossdal, Pétur Elvar Sigurðsson, Óli Þór Gunnarsson og Elín Guðmundsdóttir. Viðar Sigurjónsson, skrifstofustjóri ÍSÍ á Akureyri, sótti þingið fyrir hönd ÍSÍ.