Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing LSÍ 2026

Ársþing Lyftingasambands Íslands (LSÍ) verður...
25.03.2026 - 25.03.2026

Ársþing KÍ 2026

Ársþing Klifursambands Íslands (KÍ) verður...
26.03.2026 - 26.03.2026

Ársþing HSK 2026

Ársþing Héraðssambandsins Skarphéðins (HSK)...
22

Þórður endurkjörinn formaður ÍF

20.05.2019

Sambandsþing Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) fór fram á Radisson Blu Hóteli Sögu í Reykjavík þann 18. maí sl. Við þingið var Þórður Árni Hjaltested endurkjörinn formaður ÍF. Varaformaður er Jóhann Arnarson. Tveir nýjir stjórnarmeðlimir voru kosnir til stjórnar en það voru þau Eva Hrund Gunnarsdóttir og Geir Sverrisson og sitja þau í varastjórn ásamt Þóri Jónssyni. Í stjórn sitja fyrir Halldór Sævar Guðbergsson, Matthildur Kristjánsdóttir og Linda Kristinsdóttir. Úr stjórn gengu þau Margrét Geirrún Kristjánsdóttir og Jón Heiðar Jónsson.

Fulltrúar ÍSÍ á þinginu voru þau Sigríður Jónsdóttir 1. varaforseti ÍSÍ og Hafsteinn Pálsson, 2. varaforseti ÍSÍ.

Mynd/Jón Björn: Þórður Árni Hjaltested formaður ÍF ásamt Geir Sverrissyni og Evu Hrund Gunnarsdóttur nýjum meðlimum stjórnar ÍF.