Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ - 15. júní

03.06.2019

Sjóvá Kvenna­hlaup ÍSÍ fer fram 15. júní 2019. Hlaupið verður á yfir 80 stöðum á land­inu en þetta er í þrítug­asta skiptið sem Kvenna­hlaupið er haldið. Hlaupastaði 2019 má sjá hér á vefsíðu Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ

Í tilefni af þrítugasta Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ verður efnt til sérstakra hátíðarhalda á mörgum hlaupastöðum víðsvegar um landið. Þar að auki fer forsýning á heimildarmynd um Sjóvá  fimmtudaginn 6. júní næst komandi kl. 15:00 í Laugarásbíói.

Markmið Kvennahlaupsins hefur frá upphafi verið að vekja áhuga kvenna á reglulegri hreyfingu. Allir taka þátt á sínum forsendum og lögð er áhersla á að hver komi í mark á sínum hraða. Þó svo að hlaupið hafi í upphafi verið til hvetja konur til hreyfingar eins og nafn þess gefur til kynna þá hafa karlmenn alltaf verið velkomnir í hlaupið.

Það ættu allir að taka 15. júní frá og mæta sér til gagns og gamans og til að fagna sögu kvenna í hreyfingu og íþróttum undanfarin 30 ár.

Hér er vefsíða Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ.

Hér má sjá Facebook-síðu Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ.