Beint á efnisyfirlit síðunnar

Á döfinni

26.07.2024 - 28.11.2019

París 2024

Ólympíuleikarnir fara fram í París í...
20.09.2024 - 21.09.2024

Ársþing SKÍ 2024

Ársþing Skíðasambands Íslands verður haldið...
22.10.2026 - 28.11.2019

YOG 2026 - Dakar

Ólympíuleikar ungmenna (YOG) fara fram í...
30

Már með Instagram ÍSÍ í dag

23.12.2019

Már Gunnarsson, sundmaður og tónlistarmaður, ætlar að leyfa fólkinu í landinu að fá innsýn í sitt líf í dag, á Þorláksmessu. Már mun taka yfir Instagram síðu ÍSÍ @isiiceland og taka upp sinn dag á Instagram Story.

Már er afreksíþróttamaður og margfaldur Íslandsmethafi í baksundi í fötlunarflokki S11, flokki blindra. Már á einkar glæsilegt íþróttaár að baki sem náði hámarki á heimsmeistaramóti fatlaðra í sundi sem fram fór í september sl. í London. Þar varð Már einn Norðurlandabúa til þess að komast á verðlaunapall þegar hann setti nýtt og glæsilegt Íslandsmet í 100m baksundi og vann til bronsverðlauna í greininni. Á árinu 2019 setti Már alls 28 Íslandsmet og synti þrívegis undir gildandi heimsmeti á ÍM25 í Ásvallalaug. Már stefnir ótrauður að þátttöku á Paralympics í Tókýó 2020 en takist það ætlunarverk hans verður það í fyrsta sinn sem hann keppir á leikunum. Már er einnig tónlistarmaður en hann vann nú í desember jólalagasamkeppni Rásar tvö ásamt systur sinni Ísold Wilberg Antonsdóttur. Hann er einnig handhafi Kærleikskúlunnar 2019. Spennandi verður að fylgjast með degi í lífi Más og hvetur ÍSÍ fólk til að fylgja Instagram síðu  ÍSÍ og fylgjast með Má og fleira afreksíþróttafólki sem tekur við Instagraminu á nýju ári 2020.