Seinni hluti að hefjast í Lausanne
Vetrarólympíuleikar ungmenna fara nú fram í Lausanne í Sviss og standa til 22. janúar n.k. Fyrri hluti leikanna, þar sem keppt var í alpagreinum, lauk þann 14. janúar. Aðalbjörg Lilly Hauksdóttir og Gauti Guðmundsson kepptu fyrir Íslands hönd.
Þann 11. janúar kepptu Aðalbjörg Lillý og Gauti í svighluta tvíkeppni leikanna. Í keppninni er það samanlagður árangur úr risasvigskeppninni deginum áður auk svigkeppninnar sem fram fór þennan dag sem taldi. Gauti Guðmundsson skíðaði á 36,85 sekúndum sem var 29 besti árangur í sviginu. Í heildina varð hann því í 31. sæti í tvíkeppninni. Heildarúrslit má finna hér. Aðalbjörg Lillý Hauksdóttir féll í sviginu og lauk því ekki keppni.
Þann 12. janúar tók Aðalbjörg Lillý þátt í stórsvigskeppni stúlkna. Því miður hlekktist henni á í fyrri umferð og féll hún úr leik. Alls tóku 78 stúlkur þátt í keppninni en einungis 37 þeirra náðu að klára báðar ferðirnar. Sigurvegari í risasvigi stúlkna varð Amelie Klopfenstein frá Sviss, í öðru sæti varð finnska stúlkan Rosa Pohjolainen og í þriðja sætinu varð Amanda Salzbeger frá Austurríki.
Þann 14. janúar fór fram keppni í svigi og féllu Aðalbjörg Lillý og Gauti bæði úr leik án þess að ljúka keppni. Aðalbjörg Lillý féll í fyrri umferð en Gauti Guðmundsson í annarri umferð. Eftir fyrri ferðina var Gauti í 33. sæti.
Var þetta þeirra síðasta keppnisgrein á Vetrarólympíuleikum ungmenna 2020 og héldu þau heim á leið í gær. Þá komu íslensku þátttakendurnir í skíðagöngu á mótsstað. Seinni hluti leikanna hefst á morgun, en í seinni hluta leikanna teflir Ísland fram keppendum í skíðagöngu. Þátttakendur Íslands á Vetrarólympíuleikum ungmenna 2020 í skíðagöngu eru Einar Árni Gíslason og Linda Rós Hannesdóttir, keppandur, ásamt þjálfurunum Vadim Gusev og Sigrúnu Önnu Auðardóttur.
Með því að smella hér má finna yfirlit yfir þá keppnisviðburði sem sýndir verða í beinni útsendingu á Ólympíurásinni meðan á leikunum stendur og hægt er að horfa á Ólympíurásina hér.
Myndir af leikunum má sjá á myndasíðu ÍSÍ hér.Vefsíða Vetrarólympíuleika ungmenna 2020.
Facebook síða YOWG
Instagram síða YOWG
YouTube síða YOWG
Snapchat YOWG
Ólympíuleikar ungmenna eru ætlaðir fyrir ungt afreksfólk í íþróttum á aldrinum 15 til 18 ára. Skiptast leikarnir í sumarleika og vetrarleika eins og Ólympíuleikarnir. Hugmyndina á Jacques Rogge fyrrverandi forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar og var hún kynnt til sögunnar árið 2001, en fyrstu leikarnir voru sumarleikar sem haldnir voru í Singapore 2010. Fyrstu vetrarleikarnir fóru fram 2012 í Innsbruck í Austurríki og aðrir leikarnir í Lillehammer í Noregi 2016. Ísland hefur í bæði skiptin sent þátttakendur á leikana.